Fulltrúadeildin samþykkti endurbætt lögreglulög

Fulltrúar demókrata í fulltrúadeild á tröppum þinghússins áður en atkvæðagreiðsla …
Fulltrúar demókrata í fulltrúadeild á tröppum þinghússins áður en atkvæðagreiðsla hófst um lagabreytingafrumvarpið vegna George Floyd. AFP

Fulltrúadeild Bandaríkjaþings samþykkti í gær endurbætur á lögreglulögum landsins með 236 atkvæðum gegn 181. Ólíklegt þykir þó að ný lög fái brautargengi í öldungadeild þingsins, auk þess sem Bandaríkjaforseti hefur hótað því að beita neitunarvaldi á lögin, gangi þau í gegn.

Lagafrumvarp þetta var samið vegna og heitir eftir Bandaríkjamanninum George Floyd sem var drepinn við handtöku í Minneapolis í Minnesota 25. maí síðastliðinn, en táknrænt þykir að lagafrumvarpið hans hafi verið samþykkt nákvæmlega mánuði eftir dauða hans. 

Meðal þeirra lagabreytinga sem frumvarpið kveður á um eru þær að lögreglumenn verði gerði persónulega ábyrgir fyrir það tjón sem þeir valda, bann verði lagt við svokölluðum „no-knock“-húsleitarheimildum og stöðvun á flæði umframhernaðarbúnaðs frá Bandaríska hernum til lögreglunnar.

Demókratar eru í meirihluta í fulltrúadeildinni þar sem lagabreytingafrumvarpið var samþykkt, en ólíklegt þykir að það fái hljómgrunn í öldungadeildinni þar sem repúblíkanar ráða ríkjum, en þeir höfðu þegar lagt fram sínar eigin lagabreytingatillögur í tengslum við dauða Floyd. 

Bæði lagabreytingafrumvörpin kveða á um bann við notkun lögreglu á hálstaki, nýtt verklag við þjálfun lögregluþjóna, aukningu á notkun líkamsmyndavéla og landlægt skráningarkerfi yfir lögregluþjóna sem sakaðir hafa verið um hegðunarbrot, en demókratar telja frumvarp repúblíkana ekki munu vernda svarta Bandaríkjamenn.

Demókratar telja frumvarp repúblíkana ekki munu vernda svarta Bandaríkjamenn.
Demókratar telja frumvarp repúblíkana ekki munu vernda svarta Bandaríkjamenn. AFP

Frétt BBC

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert