Biden bólusettur

Joe Biden kjörinn forseti Bandaríkjanna var í dag bólusettur fyrir …
Joe Biden kjörinn forseti Bandaríkjanna var í dag bólusettur fyrir kórónuveirunni. AFP

Joe Biden kjörinn forseti Bandaríkjanna var í dag bólusettur fyrir kórónuveirunni. Biden fékk bóluefni frá Pfizer á spítalanum ChristianaCare í Delaware. 

Bólusetningar hófust í Bandaríkjunum fyrir viku síðan eftir að lyfjaeftirlit landsins samþykktu bóluefni Pfizer og Moderna. Dr. Jill Biden, verðandi forsetafrú Bandaríkjanna, var einnig bólusett fyrr í dag. 

Bóluefni Pfizer er gefið í tveimur skömmtum með nokkurra vikna millibili. Ekki liggur fyrir hvenær Biden fær seinni skammt bóluefnisins. 

Kamala Harris, verðandi varaforseti Bandaríkjanna, og eiginmaður hennar Doug Emhoff verða bólusett í næstu viku. 

Biden sagði í byrjun desember að hann myndi láta bólusetja sig um leið og Anthony Fauci, gæfi grænt ljós á bólusetningar. 
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert