Toshiro Nikai, formaður og næstráðandi frjálslyndra demókrata sem eru í meirihluta á japanska þinginu, segir að til þess gæti komið að aflýsa þurfi Ólympíuleikunum sem á dagskrá eru í sumar.
Covid-19-smitum hefur fjölgað að nýju á heimsvísu þegar innan við 100 dagar eru til stefnu fyrir Ólympíuleikanna sem hefjast eiga 23. júlí.
Nikai sagði við fréttastofu TBS í dag að aflýsa þyrfti leikunum óhikað ef ástand heimsfaraldursins verður enn þá of alvarlegt.
Ári eftir að Japanir frestuðu Ólympíuleikunum sem fara áttu fram í fyrra, heldur Covid-19-heimsfaraldur áfram að trufla skipulag þeirra. Stuðningur almennings í Japan við leikana mælist lítill.
Skipuleggjendur og ólympíunefndin krefjast þess að leikarnir fái fram að ganga. Nikai sagði í dag að aðrir möguleikar væru í stöðunni.
„Við þurfum að taka ákvarðanir miðað við stöðuna á hverjum tíma,“ sagði hann við fréttastofu TBS. „Við þurfum að aflýsa óhikað ef framkvæmd leikanna verður ómöguleg,“ bætti hann við.