Stjórnvöld Bandaríkjanna hafa lýst áhyggjum sínum af því að Paul Rusesabagina hafi ekki hlotið réttláta málsmeðferð. Hann var í dag sakfelldur og dæmdur til 25 ára fangelsisvistar fyrir að standa að baki hryðjuverkum á árunum 2018 og 2019 í Rúanda.
Rusesabagina er þó betur þekktur fyrir að fela hundrað tútsa á hóteli sínu þegar þjóðarmorðin í Rúanda áttu sér stað, 1994. Varð hann með því innblástur óskarsverðlaunamyndarinnar Hótel Rúanda.
Rusesabagina er með landvistarleyfi í Bandaríkjunum og dóttir hans hefur biðlað til yfirvalda þar í landi að beita sér í málinu.
Fjölskyldan heldur því fram að Rusesabagina hafi verið fluttur með valdi til Rúanda en undanfarin ár hefur hann verið í útlegð þaðan.
Ned Price, talsmaður bandaríska utanríkisráðuneytisins, segir í yfirlýsingu að það skorti staðfestingu á því að mál Rusesabagini hafi hlotið réttláta málsmeðferð. Það kalli óhjákvæmilega fram tortryggni í garð niðurstöðunnar og sanngirni hennar.