Kim Jong-un, leiðtogi Norður-Kóreu, segir hræðilegt ástand ríkja í landinu vegna Covid-19 sjúkdómsins. Hefur hann boðað útgöngubann og samkomutakmarkanir til að stemma stigu við ástandinu.
Heimsfaraldurinn, sem er á miklu undanhaldi víða í heiminum, hefur loks náð í skottið á Norður-Kóreumönnum. Yfirvöld í landinu staðfestu fyrstu tilfellin á fimmtudag en á laugardag höfðu fjölmiðlar í landinu þegar greint frá 500 þúsund tilfellum af óútskýrðum hita-einkennum meðal íbúa. 27 hafa látið lífið frá því í apríl og voru þau með hita.
Óttast er að stór faraldur muni hafa skelfilegar afleiðingar fyrir íbúana, sem telja 25 milljónir, en veikt heilbrigðiskerfi og skortur á bólusetningu setur þjóðina í viðkvæma stöðu gagnvart sjúkdómnum. Þá stendur kerfið einnig höllum fæti hvað sýnatöku varðar svo ekki hefur gengið vel að staðfesta tilfelli. BBC greinir frá.
Tilfellin sem greindust á fimmtudag marka enda á tveggja ára tímabili í Norður-Kóreu sem yfirvöld segja vera laust af Covid.
Yfirvöld hafa hingað til ekki vilja þiggja boð alþjóðasamfélagsins um milljónir skammta af bóluefni AstraZeneca auk skammta af bóluefni sem framleitt var í Kína. Þess í stað ætluðu þau að hafa hemil á faraldrinum með því að loka landamærum sínum í janúar 2020.
Landið á landamæri að bæði Kína og Suður-Kóreu sem hafa bæði glímt við faraldra. Kínverjar glíma nú við bylgju af Ómíkron-afbrigðinu.
Þegar samkomutakmarkanir voru kynntar á fimmtudag sást leiðtoginn Kim með grímu í sjónvarpinu. Er það talið vera í fyrsta sinn sem það gerist.
Hann skipaði hæsta stig öryggis til að hamla útbreiðslu veirunnar, sem fól m.a. í sér útgöngubann og samkomutakmarkanir á vinnustöðum.