Fjöldi þeirra sem lést í troðningi á knattspyrnuleikvangi í borginni Malang í Indónesíu er lægri en fyrst var uppgefið. Segja yfirvöld nú að staðfest dauðsföll séu 125 en í morgun kom fram að minnst 174 hefðu látist.
„Sum nöfn voru talin tvisvar þar sem einstaklingarnir höfðu verið sendir á annan spítala, svo nöfn þeirra voru skrifuð niður tvisvar,“ sagði Emil Dardak, ríkisstjórinn.
Á annað hundrað létu lífið í gær þegar að mikill troðningur skapaðist á knattspyrnuleikvangi í Indónesíu eftir að óeirðir brutust út.
Hörmungarnar áttu sér stað skömmu eftir leikslok þegar að lögreglan beitti táragasi á stuðningsmenn sem höfðu hlaupið út á fótboltavöllinn. Ótti greip um sig og þúsundir reyndu að forða sér út um útganga Kanjuruhan-leikvangsins samtímis með skelfilegum afleiðingum.
Troðningurinn sem skapaðist varð svo mikill að fólk átti erfitt með að ná andanum og köfnuðu einhverjir. 180 eru slasaðir, þar af 11 alvarlega.
https://www.mbl.is/frettir/erlent/2022/10/02/knattspyrnuheimurinn_i_afalli/