Stjórnmálaflokkar fá að auglýsa á X

Auðkýfingurinn Elon Musk.
Auðkýfingurinn Elon Musk. AFP/Jim Watson

Auðjöfurinn Elon Musk hefur aflétt banni á auglýsingum stjórnmálaflokka á samfélagsmiðlinum X, sem áður hét Twitter.

Í tilkynningu frá fyrirtækinu segir að ákvörðunin sé til þess fallin að „byggja ofan á skuldbindingar okkar við tjáningarfrelsi“. Banninu verður fyrst aflétt í Bandaríkjunum.

Ákvörðunin er tekin stuttu eftir að Donald Trump, fyrrverandi forseti Bandaríkjanna, birti sak­born­ings­mynd sína á miðlin­um. Fyr­ir neðan mynd­ina stóð með há­stöf­um: „Kosn­inga­af­skipti“ og „Aldrei gef­ast upp“ ásamt hlekk á vefsíðu hans.

Var það fyrsta færsla Trumps á miðlinum í tvö ár en reikn­ingi hans á miðlin­um var lokað fyr­ir fullt og allt í kjöl­far óeirðanna á þinghúsið árið 2021. Trump öðlaðist síðan óvænt aðgang að reikn­ingi sín­um að nýju eft­ir að Musk keypti miðil­inn.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert