Lögregla rannsakar árásina á Dalvegi

Málið er í rannsókn og verða skýrslur teknar af þeim …
Málið er í rannsókn og verða skýrslur teknar af þeim sem voru handteknir í dag. Samsett mynd

Átökin sem brutust út á Dalvegi í gær eru til rannsóknar hjá lögreglu og í dag verða teknar skýrslur af þeim sem handteknir voru. Þetta staðfestir Ásmundur Rúnar Gylfason, aðstoðaryfirlögregluþjónn hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu, í samtali við mbl.is

Lögregla var kölluð að verslun í Kópavogi um kvöldmatarleytið í gær eftir að tilkynning barst um átök þar sem vopn komu við sögu. Sjúkrabifreið var send á vettvang og handtók lögregla tvo sem hafa verið vistaðir í fangaklefa. 

Ráðist var að Birgittu Líf Björnsdóttur áhrifavaldi og kærasta hennar Enok Jónssyni, en Birgitta birti í gær færslu á Instagram þar sem hún kvaðst vera þakklát fyrir skjót viðbrögð lögreglu. Að sögn Birgittu eru þau Enok heil á húfi. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert