Eyjamenn stefna á full orkuskipti

Íris Róbertsdóttir, bæjarstjóri í Vestmannaeyjum, Guðlaugur Þór Þórðarson umhverfisráðherra, Árni …
Íris Róbertsdóttir, bæjarstjóri í Vestmannaeyjum, Guðlaugur Þór Þórðarson umhverfisráðherra, Árni Sigfússon, sem veitti hópnum formennsku, og Gísli Stefánsson, æskulýðs- og bæjarfulltrúi. Ljósmynd/Aðsend

Vestmannaeyjabær stefnir á full orkuskipti í Vestmannaeyjum og forsenda þess er að Landsnet ákveði að leggja tvo nýja raforkustrengi til Vestmannaeyja. Þetta kemur fram í skýrslu starfshóps, sem Guðlaugur Þór Þórðarson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, skipaði til að vinna tillögur um aðgerðir sem heyra undir málefnasvið ráðuneytisins og stuðlað geta að því að efla samfélagið í Vestmannaeyjum. Frá skýrslunni er greint í fréttatilkynningu frá Stjórnarráðinu.

Starfshópinn skipuðu Árni Sigfússon, sem veitti hópnum jafnframt formennsku, Íris Róbertsdóttir, bæjarstjóri í Vestmannaeyjum, og Gísli Stefánsson, æskulýðs- og bæjarfulltrúi. Kynnti hópurinn tillögur sínar á fundi í Vestmannaeyjum í dag.

Heildarraforkuþörf yfir 100 MW árið 2030

„Raforkuþörf í Vestmannaeyjum er nú þegar 58 MW. Þar af eru um 44 MW ótryggur flutningur, sem þýðir að olía er notuð þegar ekki fæst orka. Þá eru ótalin uppbyggingarverkefni sem koma eiga til framkvæmda á næstu árum, þ.e. aukin raforkuþörf í fiskimjölsframleiðslu, landeldi og landtengingu skipa. Þessi verkefni kalla eftir a.m.k. 35-45 MW viðbótarraforkuþörf á næstu árum. Það má því áætla að árið 2030 verði heildarraforkuþörf í Vestmanneyjum yfir 100 MW,“ segir í fréttatilkynningu Stjórnarráðsins.

Horft yfir Vestmannaeyjar.
Horft yfir Vestmannaeyjar. mbl.is/Árni Sæberg

Samkvæmt skýrslunni er eina leiðin til að tryggja öryggi raforkuflutninga og hringtengingu að ná fullum orkuskiptum í Vestmannaeyjum svo sem áætlað er og leggja tvo nýja rafstrengi þangað út.

Guðlaugur Þór Þórðarson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, segir í fréttatilkynningunni að Vestmannaeyjar verði að taka þátt í vegferð stjórnvalda. „Vestmannaeyjar verða að taka þátt í vegferð stjórnvalda að 100% orkuskiptum. Staðan í Eyjum er óásættanleg – samfélagið hefur verið keyrt að meginstefnu á jarðefnaeldsneyti frá áramótum vegna bilunar í sæstreng. Ég fagna tillögum starfshópsins en skýrslan sýnir að nauðsynlegt er að bregðast við stöðunni með skipulögðum verkefnum,“ er haft eftir ráðherra.

Undirbúi stofnun jarðvangs

Tryggja verði orkuöryggi til að Vestmannaeyjar geti orðið „græna eyjan“, samfélag sem skari fram úr og sé sjálfu sér nægt um raforku og varma.

Tæpt er á fleiri tillögum í skýrslunni, svo sem að sett verði af stað vinna við að kanna frekari kosti við nýtingu lághita og annarra staðbundinna orkuöflunarkosta, Vestmannaeyjabær verði fyrsta sveitarfélagið í heiminum til að taka upp stefnu sem miðar að „100% fiski“, sem táknar fullvinnslu og fullnýtingu allra sjávarafurða auk þess sem lagt er til að bærinn kanni frekar kosti þess að undirbúa stofnun jarðvangsins „Vestmannaeyjar, Unesco Global Geopark“.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert