Greiða atkvæði um aðgerðir á Keflavíkurflugvelli

Að störfum á Keflavíkurflugvelli.
Að störfum á Keflavíkurflugvelli. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Samninganefnd VR hefur samþykkt að efna til atkvæðagreiðslu um verkföll meðal félagsfólks VR sem starfar í farþega- og hleðsluþjónustu Icelandair á Keflavíkurflugvelli. 

Verði vinnustöðvun samþykkt er gert ráð fyrir að verkföll hefjist 22. mars. Þetta kemur fram í tilkynningu frá VR. 

Um er að ræða starfsfólk Icelandair sem sinnir meðal annars innritun, töskumóttöku, brottförum og þjónustu vegna týnds farangurs fyrir Icelandair og fleiri flugfélög.

Ragnar Þór Ingólfsson, formaður VR.
Ragnar Þór Ingólfsson, formaður VR. mbl.is/Kristinn Magnússon

Starfsfólkið starfar eftir sérkjarasamningi Icelandair sem tekur breytingum samhliða aðalkjarasamningi VR og SA og er það því undir í yfirstandandi kjaraviðræðum VR og Samtaka atvinnulífsins.

Viðræðurnar hófust á ný á mánudaginn eftir að VR og LÍV slitu sig frá breiðfylk­ingu stétt­ar­fé­laga þann 23. fe­brú­ar. 

„Óviðunandi vinnufyrirkomulag

Í tilkynningunni segir að VR hafi um langa hríð reynt að knýja á um breytingar bæði á kjörum þessa hóps og fyrirkomulagi vinnunnar sem sker sig úr íslensku kjarasamningsumhverfi. 

Um helmingur þeirra ríflega 150 sem starfa við farþegaafgreiðslu Icelandair er gert að lækka starfshlutfall sitt yfir vetrarmánuðina úr 100% í 76% og njóta ekki sjálfsagðs réttar til samfellds vinnutíma, að því er segir í tilkynningunni. 

Þá vinnur fólk sem sinnir störfum tengdum flugi á Keflavík alla jafna á 12 tíma vöktum. Starfsfólk í farþega- og hleðsluþjónustu Icelandair mætir hins vegar til vinnu að vetri milli klukkan 5 og 9 að morgni, er síðan sent heim og gert að mæta aftur til vinnu milli klukkan 13 og 17.

„Þetta er óviðunandi vinnufyrirkomulag og mikilvægt að ná fram leiðréttingu á því,“ segir í tilkynningunni. 

Sérkjarasamningur við Icelandair stendur út af í kjaraviðræðunum 

Gert er ráð fyrir að atkvæðagreiðsla um vinnustöðvun verði auglýst á morgun og að atkvæðagreiðslan, sem mun standa yfir í þrjá daga, hefjist á mánudaginn klukkan 9. Verði vinnustöðvunin samþykkt hefjast verkfallsaðgerðir 22. mars. 

Sérkjarasamningur við Icelandair er eitt af þeim atriðum sem standa út af í kjaraviðræðum VR og SA. Önnur atriði lúta meðal annars að launalið, forsenduákvæðum og ýmsum kjara- og réttindamálum.

„Það er von samninganefndar VR að samningar takist um þessi atriði og að ekki þurfi að koma til verkfalla. Hins vegar hefur gangur viðræðna leitt til þess að samninganefnd telur nauðsynlegt að kanna vilja félagsfólks sem starfa við farþega- og hleðsluþjónustu Icelandair á Keflavíkurflugvelli til vinnustöðvunar,“ segir í tilkynningunni. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert