Langbesta bleikjan á grillið

Ljósmynd/Berglind Hreiðarsdóttir

Hér erum við með sáraeinfaldan en algjörlega geggjaðan rétt sem tekur enga stund að búa til. Bleikja er alltaf fullkomin á grillið og hér er búið að bragðbæta hana með teriyaki-sósu sem kemur einstaklega vel út. Eina sem þið þurfið að hafa í huga er að ofelda bleikjuna ekki því þá þornar hún og missir töluvert af bragðgæðum sínum.

Það er Berglind Hreiðars á Gotteri.is sem á uppskriftina.

Teriyaki-bleikja á grillið

Fyrir um 4 manns

Bleikja uppskrift

  • 4 bleikjuflök (um 900 g)
  • Teriyaki-sósa með ristuðum hvítlauk (ég notaði frá Kikkoman)
  • Pipar

Aðferð:

  1. Búið til álpappírsvasa fyrir hvert flak með því að leggja flak á tvöfaldan álpappír sem klemmdur er saman á endunum og opinn að ofanverðu.
  2. Hellið nokkrum matskeiðum af Teriyaki-sósu yfir hvert flak svo hún fljóti aðeins yfir og til hliðanna, piprið örlítið.
  3. Grillið á vel heitu grilli í um 8 mínútur.

Köld grillsósa uppskrift

  • 1 ½ dós sýrður rjómi (270 g)
  • 5 msk. sweet chili-sósa
  • 1/3 agúrka
  • 1 msk. kóríander

Aðferð:

  1. Pískið saman sýrðan rjóma og sweet chili-sósu.
  2. Skerið agúrku niður í litla teninga og setjið yfir sósuna þegar hún er komin í fallega skál, stráið ferskum kóríander yfir og geymið í kæli fram að notkun.

Naan-brauð á grillið

  • 4 lítil naan-brauð
  • Fetaostur
  • Rifinn ostur

Aðferð:

  1. Setjið brauðin á álbakka og síðan fetaost og rifinn ost eftir smekk yfir.
  2. Grillið á lokuðu grilli í örfáar mínútur eða þar til osturinn er bráðinn.

Annað meðlæti

  • Bakaðar kartöflur með smjöri og salti
  • Salat með jarðarberjum og fetaosti
Ljósmynd/Berglind Hreiðarsdóttir
Ljósmynd/Berglind Hreiðarsdóttir
Ljósmynd/Berglind Hreiðarsdóttir
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert