Ragnar og Kári Sverriss hentu öllu út

Ragnar Sigurðsson innanhússarkitekt og Kári Sverriss ljósmyndari eru að gera …
Ragnar Sigurðsson innanhússarkitekt og Kári Sverriss ljósmyndari eru að gera upp íbúð í 101 sem þeir keyptu í lok síðasta árs. Þeir ætla að leyfa lesendum Smartlands að fylgjast með ferlinu.

„Við byrjuðum upp á nýtt og ákváðum að hreinsa nánast allt út úr íbúðinni sem hægt var að fjarlægja. Það sem heillaði okkur svo við íbúðina voru loftlistarnir, gluggarnir og hurðarnar þannig að við ákváðum að halda því og byggja svo ofan á það,“ segja Kári Sverriss og Ragnar Sigurðsson sem eru að gera upp íbúð sem þeir festu kaup á í lok síðasta árs. Þeir leyfa lesendum Smartlands að fylgjast með í reglulegum pistlum á Smartlandi: 

Við erum fjögur í fjölskyldunni og já einn kisi líka, íbúðin er 3 herbergja og svo geymsla upp á lofti sem við ætlum að breyta í 1 stykki unglingaherbergi, það er semsagt nóg sem þarf að gera.

Það þurfti að sparsla, pússa, fjarlægja parket, fjarlægja flísar, bæta við lögnum svo lengi mætti telja. Ég ætla ekki að drepa ykkur úr leiðindum með ritgerð, oft finnst mér myndir tala sínu máli, enda er talað um að áhrifarík mynd geti sagt meira en þúsund orð.

baðherbergi

Eins og sést þá hreinsuðum við nánast allt út, eina sem við skildum eftir var glugginn og hurðin. Klósettið og vaskurinn fóru á endanum en við ætlum að endurnýja allt inn á baðherberginu.

Okkur fannst eldhúsið of lítið og við vildum hafa það í stærri rými. Það var það ekki alveg í þeim stíl sem við vildum, þannig að gamla eldhúsið fékk að fjúka. Planið er að í þessu rými verði barnaherbergi fyrir prinsessuna á heimilinu.

Eins fallegt og okkur finnst þetta parket vera þá var það illa farið og hæfði því ekki prinsessu sem fékk að hjálpa til við að fjarlægja það.

Þá að breytingunum. Hér fyrir neðan er „mood-board“ sem við unnum fyrir íbúðina, val á litum, efni, áferðum og hugmyndum að húsgögnum og smáhlutum.

moodboard

Allt er vænt sem vel er grænt. Náttúran var okkur innblástur og unnum við efnis og litaval þannig að það væri sem næst náttúrunni. 

Hlökkum til að leyfa ykkur að fylgjast með ferlinu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Guðrún Kristjánsdóttir
Guðrún Kristjánsdóttir
Lára Guðrún Sigurðardóttir
Lára Guðrún Sigurðardóttir
Hildur Jakobína Gísladóttir
Hildur Jakobína Gísladóttir
Júlía heilsumarkþjálfi
Júlía heilsumarkþjálfi

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál