Íslensk OnlyFans-hjón fundu nýja ást eftir skilnað

Arna Bára og Heiðar leituðu á suðrænar slóðir í nýju …
Arna Bára og Heiðar leituðu á suðrænar slóðir í nýju ástarsamböndum sínum. Samsett mynd/Instagram

Fyrrverandi hjónin og OnlyFans-stjörnurnar, Arna Bára Karlsdóttir og Heiðar Árnason, hafa fundið ástina á ný. Enduðu þau bæði á suðrænum slóðum í nýjum ástarsamböndum sínum.

Arna og Heiðar giftu sig árið 2018 og eiga þrjú börn saman. Nú hafa þau hins vegar farið hvort sína leiðina.

Arna Bára er í sambandi við argentínsku fyrirsætuna Ian Hachmann. Framleiða þau sitt eigið erótíska efni á OnlyFans og virðist parið einnig vera virkt í hlutverkaleikjum sínum á Instagram.

Heiðar býr hins vegar á Spáni með kærustunni sinni, kvikmyndagerðarkonunni og fyrirsætunni Mari Cielo Pajares. Framleiða þau einnig sitt eigið efni á OnlyFans ásamt því að halda úti sameiginlegum Twitter-reikningi, þar sem þau eru dugleg að deila myndum og myndböndum af sér saman ásamt því að endurtísta myndum af Pajares. DV greindi frá því. 

Parið er ófeimið við að deila myndum af sér fáklæddum.
Parið er ófeimið við að deila myndum af sér fáklæddum. Ljósmynd/Skjáskot Twitter

 Smartland óskar þeim báðum til hamingju með nýju ástina!

DV

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál