FH hefur gengið frá tveggja ára samningi við knattspyrnumanninn unga Egil Darra Makan Þorvaldsson. Egill er fæddur árið 2001 og hefur verið fastamaður í yngri landsliðum Íslands.
Þrátt fyrir ungan aldur er honum ætlað að leika með meistaraflokki félagsins á komandi sumri. Egill er hægri bakvörður og átti pabbi hans, Þorvaldur Makan Sigbjörnsson, farsælan feril bæði á Íslandi og erlendis.
Hann á samtals tíu leiki að baki með U17 ára landsliði Íslands. Hann kemur til FH frá Breiðabliki, þar sem hann lék ekki keppnisleik með meistaraflokki.