Landsliðskonan Dagný Brynjarsdóttir er í viðræðum við Selfoss um að leika með liðinu síðari hluta tímabilsins. Dagný er án félags í augnablikinu og nýbyrjuð að æfa fótbolta á ný eftir barnsburð. Fréttablaðið.is greindi frá í dag.
Dagný eignaðist sitt fyrsta barn fyrir um mánuði síðan, en hún hefur leikið með Portland Thorns í Bandaríkjunum undanfarin tvö ár. Samningurinn hennar rann út eftir síðasta tímabil og var framlengingu slegið á frest, eftir að hún varð ólétt.
Dagný þekkir vel til á Selfossi en hún lék með liðinu sumrin 2014 og 2015.