Grindvíkingurinn Sigurjón Rúnarsson er ekki eins illa meiddur og óttast var í fyrstu. Sigurjón yfirgaf Hásteinsvöll í Vestmannaeyjum með sjúkrabíl er Grindavík og ÍBV mættust í Pepsi Max-deildinni í fótbolta í dag.
Sigurjón fékk aðhlynningu í rúmar 20 mínútur eftir samstuð við Guðmund Magnússon, leikmanns ÍBV, áður en hann var fluttur á sjúkrahús.
„Sigurjón er búinn í sneiðmynd. Fór betur en á horfðist. Hann er heill en verulega stífur og verður í einhverja daga. Næsta vika verður erfið,"segir í tilkynningu Grindavíkur á Twitter.
Sigurjón er búinn í sneiðmynd. Fór betur en á horfðist. Hann er heill en verulega stífur og verður í einhverja daga. Næsta vika verður erfið.
— UMFG (@umfg) May 11, 2019
Sendum honum batakveðjur! ❤️⚽️#fotboltinet