Magni náði í sitt fyrsta stig í 1. deild karla í fótbolta í dag, Inkasso-deildinni, er liðið gerði 1:1-jafntefli við Fram á Grenivíkurvelli í lokaleik fjórðu umferðarinnar.
Bjarni Aðalsteinsson kom Magna yfir eftir 17 mínútur en Portúgalinn Tiago Silva jafnaði á 60. mínútu og þar við sat.
Bæði lið fengu fín tækifæri til að skora sigurmarkið og þá sérstaklega Magnamenn sem misstu af góðu tækifæri í blálokin.
Fram er í sjöunda sæti með fimm stig en Magni í botnsætinu með eitt stig.
Staðan: