Tveir úr HK og ÍBV í bann

Ásgeir Marteinsson fékk sitt fjórða gula spjald gegn KA.
Ásgeir Marteinsson fékk sitt fjórða gula spjald gegn KA. mbl.is/Árni Sæberg

HK og ÍBV verða án tveggja leikmanna í næstu umferð úrvalsdeildar karla í fótbolta, Pepsi Max-deildarinnar, vegna leikbanna. Þá missir Steinþór Freyr Þorsteinsson úr KA af næsta leik. 

Ásgeir Marteinsson, leikmaður HK, fékk sitt fjórða gula spjald í deildinni sumar í 2:1-sigrinum á KA á sunnudag. Hann missir því af leik liðsins við FH á mánudaginn kemur.

Liðsfélagi hans Bjarni Gunnarsson missir einnig af leiknum við FH þar sem hann fékk beint rautt spjald í leiknum gegn KA. Steinþór Freyr úr KA fékk rautt spjald í sama leik og missir hann af leik KA og ÍA á sunnudag. 

Þá verða þeir Sigurður Arnar Magnússon og Víðir Þorvarðarson ekki með ÍBV gegn Fylki á sunnudag. Sigurður Arnar fékk sitt fjórða gula spjald í sumar er ÍBV tapaði fyrir FH, 1:2, í síðustu umferð og Víðir fékk rautt spjald í sama leik. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert