Valur sigraði Fylki með fimm mörkum gegn einu í Pepsi Max-deild kvenna í fótbolta í dag.
Fylkir byrjaði af miklum krafti, héldu bolta vel og sóttu grimmt á báða bakverði Vals. Þrátt fyrir vaskan framgang og mikinn eldmóð heimamanna misstu þær leikinn úr höndunum um leið og yfirvegaðir Valsarar komust yfir á 25. mínútu leiksins. Þar náðu landsliðskonurnar Fanndís og Elín Metta að spila sig í gegnum Fylkisvörnina, Fanndís átti svo frábæra sendingu á Elínu Mettu sem lagði boltann í autt markið 1:0.
Eftir þetta mark datt botninn úr leik heimamanna og mörkin duttu inn eitt á fætur annars og í stöðunni 0-5 slaknaði á drápseðli Valskvenna. Hlín Eiríks skoraði flott mark eftir sendingu Margrétar Láru og kom Valskonum í 2:0. Elín Metta skoraði copy/paste af marki 1 eftir sendingu Fanndísar og jók forystuna í 3:0. Landsliðsbakvörðurinn Elísa Viðarsdóttir skoraði mark af löngu færi og kom Val í 4:0 stuttu eftir hálfleik. Það var svo Hín Eiríks sem skoraði af mikilli yfirvegun eftir fínan bolta út í teiginn frá Margréti Láru 5:0.
Fylkismenn vöknuðu aðeins þegar Marija hirti boltann af tám Valsmanna eftir misskilning í vörninni og minnkaði muninn í 5:1. Það var köggur í þeim það sem eftir lifði en var ekki nóg til að raska ró Valsliðsins. Þær voru mun betri í dag.
Veðrið gerði ekki gæfumuninn í dag þar sem hraustlegur haustvindurinn blés þvert á völlinn hérna í Árbænum.
Það er því enn sami stigamunur á toppliðunum og Fylkir situr enn í öruggu sæti eftir leikinn hér í dag. Fylkir vann fimm leiki í röð fyrir leikinn í dag, en toppliðið var of sterkt.