Enski markvörðurinn Lauren Allen hefur skrifað undir samning við Þór/KA og mun hún leika með liðinu á komandi tímabili. Allen lék með Tindastóli í 1. deildinni síðasta sumar.
Allen samdi við Þór/KA í vetur, en illa gekk hjá henni að koma hingað til lands fyrst um sinn vegna kórónuveirunnar og var hún fyrstu vikurnar á Akureyri í sóttkví. Hefur hún nú lokið henni og er tilbúin að æfa með liðinu.
Allen lék með Chelsea, Fulham og Crystal Palace í London áður en hún gekk í raðir Tindastóls á Sauðárkróki. Hún lék alla 18 leiki liðsins síðasta sumar og þrjá bikarleiki, en liðið kom á óvart og hafnaði í þriðja sæti í 1. deild, tveimur stigum á eftir FH sem fór upp í úrvalsdeildina.