Framherjinn Guðmunda Brynja Óladóttir verður ekki með KR í fyrstu leikjum tímabilsins í Pepsi Max-deildinni í fótbolta vegna meiðsla. Hefur hún verið meidd í allan vetur og er á leið í aðgerð.
„Hún hefur verið að glíma við meiðsli í mjöðm og nára frá því í nóvember og er að fara í aðgerð núna 25. maí,“ sagði Jóhannes Karl Sigursteinsson, þjálfari KR, í samtali við Fótbolta.net.
Guðmunda kom til KR frá Stjörnunni fyrir síðustu leiktíð og skoraði fimm mörk í fimmtán deildarleikjum með Vesturbæjarliðinu. Hefur hún skorað eitt mark í fimmtán leikjum með A-landsliðinu.