Þór og Afturelding skildu jöfn, 1:1, er liðin mættust í Lengjudeild karla í fótbolta í dag á Þórsvelli á Akureyri. Skoruðu bæði lið mark úr vítaspyrnu á síðustu tíu mínútunum.
Afturelding fékk gott tækifæri til að komast yfir á 18. mínútu en Spánverjinn Alejandro Zambrano nýtti ekki vítaspyrnu og var staðan í hálfleik markalaus.
Þannig var hún allt fram á 81. mínútu þegar Jason Daði Svanþórsson kom Aftureldingu yfir úr vítaspyrnu. Virtist það ætla að nægja Aftureldingu til sigurs þangað til Þór fékk vítaspyrnu á lokamínútunni. Álvaro Montejo fór á punktinn og tryggði Þór eitt stig.
Þór er í sjötta sæti með 28 stig og Afturelding í áttunda sæti með 22 stig.