Knattspyrnudeild KR hefur tryggt sér starfskrafta Rúnars Kristinssonar sem þjálfara meistaraflokks karla í knattspyrnu næstu árin.
Rúnar er búinn að semja við KR út keppnistímabilið 2023 eða næstu þrjú tímabil fyrir utan það sem enn stendur yfir.
Frá þessu er greint á heimasíðu KR.
Undir stjórn Rúnars hefur KR þrívegis orðið Íslandsmeistari og þrívegis bikarmeistari. Hann stýrði KR á árunum 2010 - 2014 og tók aftur við liðinu árið 2018.