Markvörðurinn Gunnleifur Gunnleifsson, leikjahæsti leikmaður í sögu íslenskrar deildakeppni í knattspyrnu, hefur lagt skóna á hilluna.
Gunnleifur er 45 ára gamall og spilaði að vísu ekkert í sumar þar sem hann var aðstoðarþjálfari og varamarkvörður Breiðabliks á Íslandsmótinu. Hann sat á varamannabekknum í ellefu leikjum en Anton Ari Einarsson var aðalmarkvörður liðsins.
Gunnleifur spilaði 439 deildarleiki á Íslandi en hann lék fyrst með HK árið 1994, í næstefstu deild. Hann spilaði ekkert árið eftir, var þá með handknattleik sem sína aðalíþrótt, en frá og með 1996 hefur hann leikið samfleytt á Íslandsmótinu.
Hann spilaði 304 leiki í efstu deild með KR, Keflavík, HK, FH og Breiðabliki, og er þar fjórði leikjahæstur frá upphafi. Þá hefur Gunnleifur spilað 83 leiki í 1. deild, 36 leiki í 2. deild og 16 leiki í þriðju deild. Hann lék með HK 1994, 1997 og 2002 til 2009, með KVA á Reyðarfirði og Eskifirði 1996, með KR 1998-1999, með Keflavík 2000-2001, með FH 2010 til 2012 og með Breiðabliki frá 2013. Þá lék Gunnleifur í nokkra mánuði með Vaduz frá Liechtenstein í efstu deild í Sviss árið 2009, spilaði þar fimm leiki og lék því samtals 444 deildaleiki á ferlinum.
Þá spilaði hann 26 A-landsleiki fyrir Íslands hönd á árunum 2000 til 2014.