Knattspyrnumaðurinn Hallur Flosason hefur skrifað undir eins árs samning við uppeldisfélag sitt ÍA en þetta staðfesti félagið á samfélagsmiðlum sínum í dag.
Hallur, sem er 27 ára gamall, hefur leikið með ÍA allan sinn feril en hann lék sinn fyrsta meistaraflokksleik fyrir félagið árið 2011.
Hann á að baki 82 leiki í efstu deild þar sem hann hefur skorað fjögur mörk en alls hefur hann leikið 120 meistaraflokksleiki fyrir Skagamenn.
„Hallur er mikilvægur leikmaður í okkar hópi og býr yfir mikilli reynslu sem nýtist vel í því uppbyggingarstarfi sem félagið vinnur að,“ segir meðal annars í fréttatilkynningu Skagamanna.