Dregið var til undanúrslitanna í bikarkeppni kvenna í knattspyrnu, Mjólkurbikarnum, nú í hádeginu.
Bikarmeistarar Breiðabliks fara til Selfoss.
Stjarnan og Valur mætast í Garðabæ.
Leikirnir fara fram dagana 12. og 13. ágúst en úrslitaleikur keppninnar fer fram á Laugardalsvellinum 27. ágúst.