Blikakonan yfirgefur Mexíkó

Andrea Rán Hauksdóttir í landsleik gegn Írlandi á síðasta ári.
Andrea Rán Hauksdóttir í landsleik gegn Írlandi á síðasta ári. mbl.is/Kristinn Magnússon

Andrea Rán Snæfeld Hauksdóttir, landsliðskona í knattspyrnu, er farin frá mexíkóska félaginu Club América, eftir hálfs árs dvöl.

Miðjukonan gekk í raðir Club América eftir veru hjá Houston Dash í bandarísku atvinnumannadeildinni, en hún hefur einnig leikið með Le Havre í Frakklandi.

Futbol Total í Mexíkó greinir frá að Andrea hafi ekki staðist væntingar hjá félaginu og hún fengið lítið að spila. Andrea lék sex af síðustu tólf leikjum Club América á seinni hluta síðasta tímabils en hafði ekkert komið við sögu í fyrstu fjórum leikjum liðsins á nýju tímabili.

Hin 26 ára gamla Andrea hefur leikið 12 leiki með A-landsliði Íslands. Hún á að baki 127 leiki með Breiðabliki í efstu deild, þar sem hún hefur skorað 10 mörk.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert