Geggjuð gulrót eftir brösótt tímabil hjá okkur

Matthías Vilhjálmsson er fyrirliði FH og varð bikarmeistari með liðinu …
Matthías Vilhjálmsson er fyrirliði FH og varð bikarmeistari með liðinu árin 2007 og 2010. Ljósmynd/Kristinn Steinn

„Þessi leikur leggst mjög vel í okkur,“ sagði Matthías Vilhjálmsson, fyrirliði FH, í samtali við Morgunblaðið.

„Þetta er geggjuð gulrót fyrir okkur eftir brösótt tímabil og þetta tímabil gæti farið úr því að vera frekar neikvætt yfir í það að vera mjög jákvætt. Það varð ljóst mjög fljótlega, eftir að tímabilið hófst, að við vorum ekki á þeim stað sem við vildum vera í deildarkeppninni.

Markmiðið var alltaf að komast í úrslit bikarkeppninnar og tryggja sér Evrópusæti í leiðinni. Þetta er allt önnur keppni og það var gott að fá þessa bikarkeppni til að stimpla sig aðeins út úr deildinni þegar illa gekk þar,“ sagði Matthías.

Viðtalið við Matthías í heild sinni og umfjöllun um bikarúrslitaleik FH og Víkings eru í Morgunblaðinu í dag

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert