Úlfarnir skoruðu þrjú gegn Norwich

Nýliðarnir í Norwich réðu illa við Diogo Jota í dag.
Nýliðarnir í Norwich réðu illa við Diogo Jota í dag. AFP

Diogo Jota skoraði tvívegis fyrir Wolves þegar liðið vann 3:0-sigur gegn Norwich í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu á Molineux-vellinum í Wolverhampton í dag. Jota kom Wolves yfir strax á 19. mínútu og bætti við öðru marki, ellefu mínútum síðar, og staðan því 2:0 í hálfleik.

Raúl Jiménez innsiglaði svo sigur Wolves með marki á 50. mínútu og þar við sat. Wolves er með 39 stig í áttunda sæti deildarinnar, tveimur stigum frá Evrópusæti, en Norwich vermir botnsæti deildarinnar með 18 stig.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert