Bjarni: Stórt upp á framhaldið (myndskeið)

Tottenham vann glæsilegan 1:0-sigur á Manchester City í 1. umferð ensku úrvalsdeildarinnar í fótbolta á sunnudaginn var. Heung-Min Son skoraði sigurmarkið með góðu skoti snemma í seinni hálfleik.

Bjarni Þór Viðarsson og Brynjar Björn Gunnarsson voru gestir Tómasar Þórs Þórðarsonar í Vellinum á Símanum sport þar sem þeir ræddu um leikinn.

Þeir voru sammála um að sigurinn hjá Tottenham væri stór og þá sérstaklega vegna þess að Harry Kane gæti enn þá yfirgefið félagið.

Innslagið má sjá í heild sinni hér fyrir ofan en mbl.is færir ykkur efni úr enska boltanum í samvinnu við Símann sport.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert