Glæsimarkið frá öllum sjónarhornum (myndskeið)

Alexis Mac Allister skoraði magnað mark fyrir Liverpool í 3:1-sigri á Sheffield United í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í gærkvöldi.

Hann kom þá Liverpool í 2:1 með stórkostlegum þrumufleyg sem hafnaði uppi í samskeytunum.

Glæsimark Mac Allisters má sjá frá öllum sjónarhornum í spilaranum hér að ofan, en mbl.is færir ykkur efni úr enska boltanum í samstarfi við Símann Sport.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert