Valtteri Bottast á Mercedes var í þessu að vinna rússneska kappaksturinn í Sotsjí en sigurinn á hann að einhverju leyti að þakka slæmum mistökum liðsfélagans Lewis Hamiltons, sem var víttur tvöfalt í keppninni fyrir brot á reglum.
Keppni var annars engin milli fremstu fimm til sex ökumanna en meira um sviptingar og framúrakstur eftir því sem aftar dró í hópi bílanna.
Í öðru sæti varð Max Verstappen á Red Bull, þá Hamilton þriðji, síðan Sergio Pererz á Racing Point fjórði, fimmti Daniel Ricciardo á Renault, sjötti Charles Leclerc á Ferrari, sjöundi Esteban Ocon á Renault, áttundi Daniil Kvyat á AlphaTauri, níundi Pierre Gasly á AlphaTauri og tíunda og síðasta stigasætið vann Alex Albon á Red Bull.
Hamilton gætti sín ekki á reglum er hann og æfði ræsistört tvisvar á úthring kappakstursins utan leyfilegra svæða. Fyrir þar fékk hann tvöfalda refsingu, 5 sekúndu viðbót við aksturstímann í hvort sinn sem hann tók út í einu 10 sekúndna stoppvíti.