Belgískir fjölmiðlar hafa greint frá því í dag að íslenski knattspyrnumaðurinn Jón Dagur Þorsteinsson sé á leiðinni til Leuven í Belgíu.
Hann á að hafa neitað tilboði frá Standard Liege og Mechelen sem eru einnig belgísk félög.
Samkvæmt fótbolta.net flýgur Jón Dagur út í dag til að skrifa undir hjá nýju félagi sem verður að öllum líkindum Leuven.