Sóknarmaðurinn Joel Campbell gekk í dag í raðir ítalska A-deildarfélagsins Frosinone frá Arsenal. Campbell hefur verið samningsbundinn Arsenal síðustu sjö ár, en á þeim tíma verið lánaður út til fjölda félaga.
Hann hefur m.a spilað með Lorient, Real Betis, Villarreal og Olympiakos. Campbell er 26 ára gamall og á 40 leiki fyrir Arsenal. Campbell hefur leikið 79 landsleiki fyrir Kostaríka og lék hann á HM í Rússlandi.
Emil Hallfreðsson leikur með Frosinone, eftir félagsskipti frá Udinese í sumar.