Gunnhildur og Utah Royals á toppinn

Gunnhildur Yrsa Jónsdóttir og liðsfélagar hennar í Utah Royals eru …
Gunnhildur Yrsa Jónsdóttir og liðsfélagar hennar í Utah Royals eru komnar á toppinn í bandarísku NWSL-deildinni.

Gunnhildur Yrsa Jónsdóttir var í byrjunarliði Utah Royals sem mætti Orlando Pride í bandarísku NWSL-deildinni í knattspyrnu í nótt en leiknum lauk með 1:0-sigri Utah Royals. Gunnhildur lék allan leikinn á miðjunni hjá Utah Royals en það var hin bandaríska Christen Press sem skoraði eina mark leiksins á 19. mínútu.

Þetta var annar leikur Utah Royals í NWSL-deildinni í vor en liðið er með fullt hús stiga á toppi deildarinnar með 6 stig eftir fyrstu tvær umferðirnar. Nort Carolina, Portland Thornes og Houston Dash eru í næstu sætum fyrir neðan með fjögur stig.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert