Argentína tryggði sér í kvöld annað sæti B-riðils og sæti í átta liða úrslitum Ameríkubikarsins í fótbolta. Argentína hafði betur gegn gestaliði Katar í lokaumferð riðlakeppninnar, 2:0. Argentína vann aðeins einn leik í riðlakeppninni og var heppin að komast áfram.
Lautaro Marínez kom Argentínu yfir strax á fjórðu mínútu og var staðan 1:0 allt fram að 82. mínútu þegar Sergio Agüero skoraði eftir glæsilegan einleik. Argentína mætir Venesúela í átta liða úrslitum.
Kólumbía gulltryggði sér toppsæti riðilsins með 1:0-sigri á Paragvæ. Gustavo Cuéllar skoraði sigurmarkið á 31. mínútu. Kólumbía vann alla þrjá leiki sína í riðlakeppninni mætir væntanlega Síle eða Úrúgvæ í næstu umferð.