Danska knattspyrnuliðið Horsens lagði Partizan Belgrad frá Serbíu að velli í æfingaleik í dag.
Aron Sigurðarson skoraði sigurmark Horsens, 1:0, snemma í síðari hálfleik og var óheppinn að bæta ekki við marki síðar í leiknum.
Horsens er eins og önnur dönsk úrvalsdeildarlið að búa sig undir seinni hluta tímabilsins sem hefst 19. febrúar. Þar er Horsens í níunda sæti af tólf liðum en er aðeins tveimur stigum frá því að komast í efri hlutann fyrir lokasprettinn í deildinni.