Serena mun ekki verja titilinn

Serena Williams.
Serena Williams. AFP

Serena Williams, ein besta tenniskona sögunnar, mun ekki freista þess að verja titil sinn á fyrsta risamóti ársins, Opna ástralska meistaramótinu, sem hefst síðar í þessum mánuði.

Hin 36 ára gamla Williams sneri aftur á tennisvöllinn á dögunum aðeins fjórum mánuðum eftir að hafa eignast sitt fyrsta barn í september. Williams hefur ekki spilað síðan hún vann Opna ástralska meistaramótið fyrir ári, en segist ekki tilbúin til að taka þátt.

„Jafnvel þó að ég sé mjög nálægt [fyrri styrk] þá er ég ekki á þeim stað sem ég hefði viljað. Ég get keppt, en ég vil ekki bara keppa. Ég vil freista þess að gera betur en það og til þess þá mun ég þurfa aðeins meiri tíma,“ sagði Williams.

Serena hefur unnið 23 risamót á ferlinum og hefur engin önnur tenniskona unnið fleiri síðan núgildandi fyrirkomulag var tekið upp. Hún fór ekki neðar en í 22. sæti heimslistans þrátt fyrir að missa nánast af öllu keppnistímabilinu í fyrra vegna óléttunnar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert