Norðmenn unnu enn ein gullverðlaunin á Vetrarólympíuleikunum í Pyeongchang í Suður-Kóreu í dag þegar þeir tryggðu sér sigur í sprettgöngu karla.
Johannes Høsflot Klæbo og Johnsrud Sundby höfðu sigur en þeir urðu 1,71 sekúndu á undan Rússum og Frakkar unnu til bronsverðlauna en þeir komu í mark 2,01 sekúndum á eftir Norðmönnum.
Klæbo, sem er 21 árs gamall, vann þar með sín þriðju gulllverðlaun í Pyeongchang og þetta voru 12. gullverðlaun Norðmanna á leikunum.