Valgarð Reinhardsson, núverandi Íslandsmeistari úr Gerplu, varði Íslandsmeistaratitil sinn í fjölþraut, í dag á Íslandsmeistaramótinu í áhaldafimleikum sem fram fór í fimleikahúsi Ármanns en þetta er þriðja árið í röð sem Valgarð verður Íslandsmeistari í fjölþraut. Hann fékk 76.598 stig fyrir æfingar sínar og sigraði þar með næsta mann með 2,166 stigum.
Þetta er í fjórða skipti sem Valgarð vinnur titilinn en varð fyrst Íslandsmeistari árið 2015. Í öðru sæti var Íslandsmeistari unglinga frá því í fyrra, Martin Bjarni Guðmundsson, sem var að keppa í fyrsta skipti í fullorðinsflokki með 74.432 stig. Í þriðja sæti með 72.599 stig var Eyþór Örn Baldursson en alls voru 10 keppendur í fullorðinsflokki karla.
Í kvennaflokki sigraði Agnes Suto-Tuuha úr Gerplu og er þetta hennar fyrsti Íslandsmeistaratitill í fjölþraut en hún var elsti keppandinn á mótinu í ár, 27 ára. Keppnin var gríðarlega spennandi í kvennaflokki en einungis munaði 0.1 stigum á milli Agnes og Thelmu Aðalsteisdóttur fyrir síðasta áhald. Agnes sigraði með 47.750 stig og Thelma varð í öðru sæti með 47.450 stig. Emilía Björt Sigurjónsdóttir úr Björk hafnaði í þriðja sæti en hún hlaut 45.050 stig.
Jónas Ingi Þórisson sigraði örugglega í unglingaflokki karla með 71.498 stig, heilum 7.101 stigum á undan Ágúst Inga Davíðssyni úr Gerplu sem lauk móti með 64.397 stig. Í þriðja sæti var Valdimar Matthíasson úr Gerplu með 61.332 stig.
Laufey Birna Jóhannsdóttir úr Gróttu varð í fyrsta sæti í unglingaflokki kvenna með 46.500, í öðru sæti varð Hildur Maja Guðmundsdóttir úr Gerplu með 45.400 stig og í því þriðja Guðrún Edda Min Harðardóttir úr Björk með 43.950 stig.
Á morgun fara fram úrslit á einstökum áhöldum, þar sem 5 hæstu keppendur á hverju áhaldi berjast um Íslandsmeistaratitilinn á áhaldinu. Keppnin hefst kl. 15:00 í fimleikahúsi Ármanns, Laugarbóli og verður mótið sýnt í beinni útsendingu á RÚV og hefst útsending kl. 15:00.