Hannes sæmdur gullmerki ÍSÍ

Hannes S. Jónsson formaður KKÍ ásamt Páli Kolbeinssyni sem lét …
Hannes S. Jónsson formaður KKÍ ásamt Páli Kolbeinssyni sem lét af stjórnarsetu hjá KKÍ á þinginu.

Gullmerki ÍSÍ hafa verið á lofti síðustu dagana. Hannes Sigurbjörn Jónsson, formaður Körfuknattleikssambands Íslands, var sæmdur gullmerkinu á körfuboltaþingi um helgina. 

Á þingi HSH, Héraðssambands Snæfellsnes- og Hnappadalssýslu, sem haldið var í Stykkishólmi, fengu frændur gullmerki ÍSÍ: Gunnar Svanlaugsson og Ríkharður Hrafnkelsson. Lesendur Morgunblaðsins kannast vel við Ríkharð sem skrifaði árum saman um körfuboltaleiki fyrir Morgunblaðið. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert