Íslenska kvennalandsliðið í knattspyrnu verður stöðugt betra eftir því sem fleiri leikmenn gerast atvinnumenn hjá stórum og sterkum liðum erlendis.
„Þessar ungu stelpur eru frábærar í fótbolta, það er gaman að fá þessa blöndu af ungum og eldri leikmönnum,“ sagði Elísa Viðarsdóttir í samtali við mbl.is á blaðamannafundi í dag. Íslenska landsliðið vann 3:2-sigur gegn Írlandi í vináttulandsleik á Laugardalsvellinum á föstudaginn og liðin mætast aftur á sama velli á þriðjudaginn.
Íslenska landsliðshópinn skipa yngri og reyndari leikmenn í bland en nokkra reynda leikmenn vantar. Guðný Árnadóttir og Hlín Eiríksdóttir eru meiddar og fyrirliðinn Sara Björk Gunnarsdóttir er barnshafandi eins og kunnugt er. Elísa segir það gleðiefni að fá unga og efnilega leikmenn inn, enda fara ungar knattspyrnukonur í auknum mæli út í atvinnumennsku til öflugra liða um alla Evrópu.
„Eftir því sem fleiri stelpur fara út og í betri lið þá að sjálfsögðu verða gæðin meiri innan hópsins. Það er gleðiefni að fá svona margar stelpur út, gerir okkur betri og gerir ungum stelpum kleift að hugsa stórt og stærra. Við erum líka ekki bara að senda stelpur eitthvert út, þær eru að fara í stórlið í Evrópu.“
Ísland hefur nú spilað þrjá vináttuleiki undir stjórn Þorsteins Halldórssonar en hann tók við þjálfun landsliðsins í vetur. Leikurinn á þriðjudaginn verður svo síðasti vináttuleikurinn áður en Ísland mætir Hollandi í undankeppni HM á Laugardalsvelli í september. Elísa segir að hópurinn verður klár í undankeppnina.
„Við fengum frábært verkefni á Ítalíu þar sem við spilum tvo leiki gegn erfiðu liðið og vorum minna með boltann. Núna erum við meira með boltann gegn Írum og getum séð hvar við stöndum. Við getum byggt ofan á þetta. Steini og Ási eru að koma sínum áherslum á framfæri og við erum móttækilegur hópur.“