Vésteinn Hafsteinsson er nýr afreksstjóri Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands. Hann mun samhliða starfinu leiða nýjan starfshóp Ásmundar Einars Daðasonar, mennta- og barnamálaráðherra, um stöðu og réttindi afreksíþróttafólks. Tilkynnt var um þetta á blaðamannafundi í Gautaborg í Svíþjóð í gær.
Þá skrifaði ÍSÍ undir samstarfssamning við Mennta- og barnamálaráðuneytið um stefnumörkun og uppbyggingu afreksíþróttastarfs á Íslandi. Markmiðið er að umgjörð afreksíþróttastarfs verði eins og best verður á kosið þannig að afreksíþróttafólk okkar standi jafnfætis keppinautum sínum á alþjóðavísu.
Lárus L. Blöndal forseti ÍSÍ segir í fréttatilkynningu frá ÍSÍ vera mikinn feng að fá Véstein til starfa fyrir ÍSÍ og fyrir íslenskt samfélag.
„Vésteinn þekkir vel hvað þarf til svo að afreksíþróttafólk nái árangri á alþjóðlegum vettvangi og getur miðlað þekkingu og leitt þá vinnu sem fram undan er hjá ÍSÍ og stjórnvöldum gagnvart þessum stóra málaflokki. Hann hefur starfað á þessum vettvangi hjá systursamtökum okkar og náð gríðarlegum árangri. Þá hafa fáir Íslendingar sambærilega reynslu af afreksstarfi og Ólympíuleikum eins og Vésteinn og við væntum mikils af hans störfum í þágu afreksíþrótta.“
Lárus segir mikilvægt að allir vinni saman að því að efla sess afreksíþrótta í íslensku þjóðfélagi, þ.e. ÍSÍ, sérsambönd, íþróttahéruð, íþróttafélög, stjórnvöld, sveitarfélög, skólakerfið og atvinnulífið.
„Við erum alltaf sterkari saman og fyrir Ísland og Íslendinga er allt hægt,“ segir Lárus.