Ólafía Þórunn Kristinsdóttir verður á meðal keppenda á fimmta og síðasta risamóti ársins sem fram fer í Frakklandi 14.-17. september. Það verður þriðja risamótið sem Ólafía tekur þátt í á þessu tímabili. Þetta kemur fram á Vísi.
Ólafía Þórunn er fyrsti íslenski kylfingurinn sem leikið hefur á risamóti en það gerði hún á KPMG PGA-meistaramótinu í júní. Hún komst inn á Opna breska meistaramótið í ágúst og í millitíðinni hafði Valdís Þóra Jónsdóttir úr Leyni keppt á Opna bandaríska meistaramótinu. Íslendingar hafa því verið á fjórum af alls fimm risamótum ársins á atvinnumótaröð kvenna.
Ólafía keppir á LPGA-móti í Indianpolis sem hefst á morgun áður en hún fer yfir til Frakklands á Evian-meistaramótið.