Ólafía er reynsluboltinn í ráshópnum

Ólafía Þórunn Kristinsdóttir.
Ólafía Þórunn Kristinsdóttir.

Óhætt er að segja að Ólafía Þórunn Kristinsdóttir, atvinnukylfingur úr GR, verði reynsluboltinn í sínum ráshópi á næsta LPGA-móti sínu í golfi sem hefst í Arizona í Bandaríkjunum á morgun.

Ólafía hefur leik klukkan 09.01 að staðartíma, 16.01 að íslenskum tíma, en með henni í ráshópi eru Lauren Coughlin frá Bandaríkjunum og Daniele Darquea frá Ekvador. Coughlin er nýliði á mótaröðinni í ár á meðan Darquea var nýliði í fyrra líkt og Ólafía, en tók aðeins þátt í einu móti.

Ólafía situr í 171. sæti heimslistans, en til samanburðar er Darquea í 423. sæti og Coughlin í 875. sæti. Mótið er þriðja mótið á tímabilinu á LPGA mótaröðinni hjá Ólafíu. Hún endaði í 26. sæti á fyrsta mótinu á Bahamas og komst ekki í gegnum niðurskurðinn á móti sem fram fór í Ástralíu. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert