Guðrún Brá Björgvinsdóttir, Íslandsmeistari í golfi, endaði í dag í 38. sæti á Anna Nordqvist Vasteras Open-mótinu sem fór fram á LET Access-mótaröðinni. Guðrún Brá lék hringina þrjá samtals á 10 höggum yfir pari.
Guðrún var á 4 höggum yfir pari fyrir lokahringinn sem hún lék á 78 höggum. Hún fékk níu skolla á hringnum og þrjú pör.
Berglind Björnsdóttir tók einnig þátt í mótinu en komst ekki í gegnum niðurskurðinn. Hún lék hringina tvo samtals á 20 höggum yfir pari.