Atvinnukylfingurinn Valdís Þóra Jónsdóttir fer upp um fimm sæti á nýjum heimslista í golfi eftir mót helgarinnar í Evrópumótaröðinni, Fatima Bint Mubarak Ladies Open.
Valdís hafnaði í 49. sæti á mótinu, en sigurvegarinn, Charley Hull, fór upp um eitt sæti og er nú í 23. sæti. Engar breytingar urðu á efstu tíu sætunum.
Ariya Jutanugarn frá Taílandi er efst á heimlistanum. Sung Huyn Park og So Yeon Ryu frá Suður-Kóreu koma þar á eftir í öðru og þriðja sæti.