Hekla og Haraldur til Aftureldingar

Haraldur Þorvarðarson er kominn í þjálfarateymi Aftureldingar.
Haraldur Þorvarðarson er kominn í þjálfarateymi Aftureldingar. mbl.is/Árni Sæberg

Haraldur Þorvarðarson hefur verið ráðinn í þjálfarateymi Aftureldingar og mun hann sjá um að þjálfa meistaraflokk kvenna í handknattleik ásamt Davíð Svanssyni sem hefur þjálfað liðið undanfarin tvö ár. 

Haraldur var aðstoðarþjálfari kvennaliðs Fram áður en hann tók við Fylki fyrir síðustu leiktíð, en hann var rekinn í janúar. 

Hekla Rún Ámundadóttir hefur svo skrifað undir tveggja ára samning við Aftureldingu, en hún kemur frá Íslandsmeisturum Fram. Hekla skoraði 21 mark í tíu leikjum fyrir Fram á síðustu leiktíð.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert