Arnór Þór Gunnarsson og liðsfélagar hans í Bergischer tryggðu sér í kvöld sæti í efstu deild þýska handboltans með 35:22-sigri á Wilhelmshavener á heimavelli sínum.
Arnór skoraði sex mörk í leiknum, en Bergischer er búið að vera með mikla yfirburði í deildinni í vetur og eru enn sjö umferðir eftir af deildarkeppninni.
Bergischer hefur unnið 29 leiki og aðeins tapað tveimur og er Arnór búinn að vera á meðal bestu mönnum deildarinnar. Bergischer féll úr deild þeirra bestu á síðustu leiktíð, en Arnór og félagar voru fljótir að tryggja sér sæti í efstu deild á ný.