Viggó Kristjánsson og Ólafur Bjarki Ragnarsson áttu stóran þátt í að West Wien náði í 25:25-jafntefli á heimavelli sínum gegn toppliði Alpla Hard í austurríska handboltanum í kvöld.
Þegar tvær mínútur voru til leiksloka var Alpla Hard með 25:21-forystu, en þá komu þrjú íslensk mörk í röð á örfáum sekúndum; tvö frá Viggó og eitt frá Ólafi og minnkuðu þeir muninn í 25:24. West Wien skoraði svo jöfnunarmarkið tíu sekúndum fyrir leikslok. Hannes Jón Jónsson þjálfar West Wien sem er í 4. sæti af 5 liðum í baráttunni um austurríska meistaratitilinn.